Hverfið okkar í nærmynd er þróunarverkefni unnið af þremur skólum í norðanverðum Grafarvogi í samvinnu við Mixtúru og Nýmennt. Skólarnir eru Borga-, Engja- og Víkurskóli. Borga- og Engjaskóli eru með nemendur í 1.-7.bekk sem sameinast síðan í unglingadeild í Víkurskóla.
Þróunarverkefnið fékk styrk frá Reykjavíkurborg til kaupa á tækjum til að efla margmiðlunarþekkingu nemenda. Með verkefninu er stefnt á að nemendur kynnist sínu nærumhverfi og miðli reynslu sinni og þekkingu til annara í gegnum þessa vefsíðu.