Hér má lesa upprunalegar hugmyndir um verkefnið en þær hafa þróast og breyst þegar liðið hefur á verkefnið:
Verkefnið "Hverfið okkar í nærmynd - rödd samfélagsins" hefur það markmið að efla tengsl milli nemenda Borgaskóla, Engjaskóla og Víkurskóla í samstarfi við félagsmiðstöðina Vígyn í Grafarvogi, með því að virkja þá til að skoða og kynna samfélagið sitt. Það verður gert með því að nemendur taka þátt í að framleiða kynningarefni með kvikmyndaupptökum og hlaðvarpi um ýmsa þætti sem einkenna Grafarvog, svo sem náttúru, sögu, menningu og íbúa. Nemendurnir taka viðtöl við íbúa, listafólk, íþróttafólk og aðra íbúa hverfisins, með áherslu á fjölbreyttar raddir og menningarheima.
Markmið verkefnisins endurspeglar Menntastefnu Reykjavíkur á þann hátt að það styrkir félagsleg tengsl nemenda og eflir skilning þeirra á nærumhverfinu. Með því að sameina nemendur í Borgaskóla, Engjaskóla og Víkurskóla og með því að vera í samstarfi við Vígyn í verkefni sem krefst samvinnu og samskipta styrkist tengslanet nemenda. Viðtöl við fólk af ólíkum uppruna gefur nemendum innsýn í mismunandi menningarheima Nemendur eru virkir þátttakendur og hafa rödd og áhrif. Nemendur fá tækifæri til að rækta hæfileika sína í skapandi miðlun og nýta til þess stafræna tækni. Einnig fá þau tækifæri til að sýna hug sinn í verki og koma skoðunum sínum á framfæri. Verkefnið leggur upp með að styrkja sjálfsmynd nemenda og trú á að þau geti haft mótandi áhrif á samfélagið sem þau tilheyra.
Verkefnið hvetur til skapandi og gagnrýninnar hugsunar. Með því að vinna úr upplýsingum og framleiða kynningarefni læra nemendur að vinna með fjölbreytt gögn á skapandi hátt. Nemendur hafa atbeini sem er mikilvægt til þess að verkefnið hafi gildi fyrir þau sem einstaklinga. Afraksturinn birtist svo sem sýn nemenda á samfélagið.
Verkefninu er ætlað að byggja upp sjálfstraust og samskiptahæfni nemenda. Í gegnum viðtöl, myndbandsgerð og hlaðvörp læra nemendur að tjá sig og vinna í hópi. Það getur reynt á sjálfsaga, samskipti og þrautseigju sem eru mikilvægir þættir fyrir þroska barna.
Verkefnið þjálfar félagsfærni bæði í samskiptum við samnemendur, nemendur í öðrum skólum, starfsfólk og viðmælendur. Nemendur fá innsýn í líf fólks sem hjálpar þeim að setja sig í spor annarra og eykur líkur á því að þau sýni fólki góðvild og virðingu. Verkefnið gefur börnum tækifæri til að þroskast með því að rýna í og kynnast fjölbreytileika samfélagsins.
Markmið verkefnisins er einnig í samræmi við jafnréttismarkmið Mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar, þar sem það leggur áherslu á að auka þátttöku allra nemenda. Með því að taka viðtöl við fólk frá ólíkum menningarheimum og kynslóðum, styrkir verkefnið menningarlegt jafnræði og eykur vitund um mikilvægi fjölbreytni og samheldni innan samfélagsins.
Starfsstaðir verkefnisins eru allir í Austurmiðstöð. Nemendur í Borgaskóla og Engjaskóla sameinast í 8. bekk í Víkurskóla. Vígyn er félagsmiðstöð fyrir þau öll. Þetta verkefni er hugsað til þess að gefa nemendum tækifæri á samstarfi milli skólanna, frístundamiðstöðvar og styrkja þannig tengsl nemenda og starfsfólks. Þessir starfstaðir hafa áhuga á að byggja upp þekkingu á upptökutækni og miðlun til þess að styrkja þróun nýsköpunar sem unnið hefur verið að á undanförnum árum. Við höfum áhuga á að koma okkur upp hljóð- og myndvinnslu búnaði til þess að gera nemendum kleift að þjálfa sig í framsetningu efnis á faglegan máta. Við viljum styrkja lærdómssamfélagið og halda áfram að skapa menningu sem styður við þróunar- og nýsköpunarstarf.
Hugmyndin snýst um að nemendur kynni sér Grafarvog frá mörgum hliðum og framleiði kynningarefni með kvikmyndaupptökum og hlaðvarpi. Hlaðvarp getur til dæmis verið viðtöl við eldri íbúa um Grafarvog, viðtöl við listafólk, íþróttafólk eða aðra íbúa Grafarvogs sem áhugavert er að kynnast. Nemendur geta tekið viðtöl við fólk af ólíkum uppruna og fengið innsýn inn í ólíkan menningarheim. Kvikmyndatökur geta meðal annars verið af náttúru og lífríki, upphaf byggðar í Grafarvogi, ungmennafélagið Fjölni, félagsstarf, leiksvæði og önnur skemmtileg svæði, menningarstarfsemi og starfsemi í hverfinu. Lagt er upp með að skipta Grafarvogi upp í svæði og nemendahópar greini sitt svæði út frá því hvað er til fyrirmyndar, hvað er til staðar og hvað þau telja vanta. Hóparnir koma með tillögur um úrbætur. Í framhaldi gera þau kort af Grafarvogi sem sýnir staði í Grafarvogi sem vert er að skoða. Á kortinu verða tenglar á kynningarmyndbönd um svæðin.
Hugmyndin er að nemendur kynni sér hverfið á dýptina og að afraksturinn verði sýndur sem kynningarefni fyrir íbúa til dæmis á barnamenningarhátíð eða á samsýningu allra. Sett verður upp heimasíða með verkum nemenda.
Með þessu verkefni viljum við auka þekkingu nemenda á hverfinu sínu og gefa þeim tækifæri til þess að kynnast fjölbreytni hverfisins. Styrkja tengsl nemenda og starfsfólks milli skólanna frístundamiðstöðva. Síðast en ekki síst viljum við gefa nemendum rödd í samfélaginu og tækifæri til þess að benda á hvað vantar í samfélagið og koma með tillögur til úrbóta.
Með verkefninu vonumst við til að styrkja tengslanet nemenda og auka víðsýni þeirra og samkennd. Við viljum opna augu nemenda fyrir fjölbreytileika samfélagsins. Þátttaka nemenda í þessu verkefni þjálfar nemendur í gagnrýnni hugsun, upplýsingaleit, skapandi vinnubrögðum og tæknilegri færni við gerð hlaðvarpa og myndbanda. Verkefnið er hugsað til þess að sameina nemendur þar sem þau vinna að sameiginlegu markmiði að kynna hverfið sitt út frá þeirra sjónarhorni.
Þetta verkefni er hugsað til framtíðar og hægt að byggja ofan á það bæði með áframhaldandi samstarfi þessara starfsstaða en einnig gætu fleiri starfsstaðir bæst inn í verkefnið.
Upprunaleg aðferðafræði, verk- og tímaáætlun:
Fundur með tengiliðum námskeiðs og NýMennt. Kynning á verkefninu undirbúin. Kynning á hlaðvarpi og þjálfun í upptöku hlaðvarps.
Verkefnið kynnt á fundum starfsstaða. Áhersla á að a.m.k. 7. og 8. bekkur taki þátt í verkefninu í upphafi þar sem það eru árgangarnir sem eru að færast á milli en vonandi verður áhugi og þátttaka í öllum árgöngum á miðstigi og unglingastigi.
Tengiliðir hittast mánaðarlega.
Annað starfsfólk sem er þátttakendur í verkefninu hittir tengilið mánaðarlega.
Fundir tvisvar á önn þar sem starfsfólk hittist og ber saman bækur skoðar afrakstur verkefnisins og fær fræðslu frá Nýmennt og Mixtúru. Hver starfsstöð stýrir einum fundi.
Verkefni nemenda eru ýmist unnin með kennurum í tækniveri, umsjóna kennurum, starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar og greina kennurum (til dæmis í Uglu tímum í Víkurskóla).
Á haustönn verður unnið með hlaðvarp. Nemendur fá kennslu í upptöku hlaðvarps. Starfsstaðir velja hvaða stefna er tekin við val á viðmælendum. Nemendur undirbúa viðtöl og finna viðmælendur með hjálp kennara. Hver hópur tekur upp viðtal í formi hlaðvarpsþáttar.
Tengiliðir safna hlaðvörpum saman og flokka þau. Hlaðvörpin eru svo tengd við heimasíðu verkefnisins. Áætlað að síðan geti opnað í lok haustannar.
Á vorönninni í janúar og febrúar er norðanverðum Grafarvogi skipt upp í svæði og hver nemendahópur tekur að sér að skoða ákveðið svæði og rýna í það. Hvað hefur svæðið uppá að bjóða? Á staðurinn sér sögu? Hvað einkennir svæðið, hvað er til staðar og hvað þau telja vanta. Hóparnir koma með tillögur um úrbætur. Niðurstöðurnar eru skráðar inn á kort á heimasíðunni.
Í mars velja hóparnir staði í Grafarvogi sem vert er að skoða. Hóparnir taka upp fræðslu- eða kynningarmyndband um svæðið. Kynningarmyndböndin verða síðan tengd inn á kortið af Grafarvogi.
Að vori er haldin sýning á verkum nemenda annað hvort í tengslum við Barnamenningarhátíð eða sér viðburður á einni starfsstöðinni þar sem íbúum er boðið að koma og kynna sér afrakstur verkefnisins.
Samstarf við fræðasamfélagið er við Svein Bjarka Tómasson verkefnastjóra nýsköpunar- og tæknimenntunar hjá NýMennt. Hann hefur áralanga reynslu af upptökum af þessu tagi í fyrra starfi sínu sem grunnskólakennari í Melaskóla þar sem hann vann með nemendum að upptökum af ýmsu tagi. Auk þess hefur hann mikla reynslu af nýsköpunarstarfi og þróunarstarfi með börnum. Hann er tilbúinn að vera ráðgjafi verkefnisins og styðja við verkefnið með fræðslu til starfsfólks í tæknilegum útfærslum og skapandi kennslu.
Í upphafi mun Sveinn halda námskeið fyrir starfsfólk í notkun upptökubúnaðar með börnum. Í framhaldi af því prófar starfsfólk sig áfram með nemendum. Þegar komin er smá reynsla á verkefnið hittum við Svein aftur og förum yfir hvað gengur vel og hvaða þætti við þurfum að styrkja okkur í. Sveinn mun vinna með okkur að þróun og skipulag verkefnisins.
Þessi hugmynd fæddist á Menntabúðum Mixtúru í Borgarnesi, “Að ögra framtíðinni: STEAM og skapandi skil í verki”. Þar vorum við nokkur úr Grafarvogi á námskeiði hjá Sveini um upptökutækni og sáum möguleika á spennandi samstarfi þar sem við myndum styrkja tækniþekkingu skólanna og vinna skapandi verkefni í samvinnu. Þar sem skólarnir eru í Grafarvogi fæddist hugmyndin um að tengja verkefnið við nærsamfélagið.
Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir deildarstjóri Mixtúru, sköpunar- og tæknivers skóla- og frístundasviðs er tilbúin að vera verkefninu innan handar með stuðningi og ráðgjöf við þróun verkefnisins. Mixtúra býður starfsstöðum SFS stuðning og ráðgjöf við innleiðingu á stafrænni tækni og skapandi vinnu. Það er einnig möguleiki að fá tækjabúnað lánaðan hjá Búnaðarbanka Mixtúru þar til starfsstöðvar hafa komið sér upp aðstöðu. Mixtúra býður upp á fræðslu fyrir starfsfólk meðal annars í myndbandagerð, hlaðvarpsgerð og hljóðupptökum auk þess eru námskeið og fræðsla um samþættingu og skapandi og fjölbreytt skil sem við stefnum að að nýta í þessu verkefni.